Meðferð mála í stjórnsýslunni
(1608069)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
26.09.2016 | 73. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Meðferð mála í stjórnsýslunni Formaður nefndarinnar, Ögmundur Jónasson, kynnti drög að bréfi til innanríkisráðherra og forsætisnefndar Alþingis. Samþykkt að senda bréfið. |
19.09.2016 | 70. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Meðferð mála í stjórnsýslunni Nefndin ræddi málsmeðferð. |
08.09.2016 | 66. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Meðferð mála í stjórnsýslunni Jón Höskuldsson frá dómstólaráði kom á fund nefndarinnar, ræddi málið og svaraði spurningum nefndarmanna. Þá komu Anna Birna Þráinsdóttir og Þórólfur Halldórsson frá Sýslumannafélagi Íslands, ræddu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
01.09.2016 | 63. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Meðferð mála í stjórnsýslunni Á fundinn kom Áslaug Björgvinsdóttir fyrrverandi héraðsdómari og gerði grein fyrir sjónarmiðum varðandi umbætur á stjórnsýslu dómstólanna ásamt því að svara spurningum nefndarmanna. |
30.08.2016 | 62. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Meðferð mála innan stjórnsýslunnar Á fundinn kom Arngrímur F. Pálmason og gerði grein fyrir sjónarmiðum varðandi meðferð sinna mála fyrir dómstólum og innan stjórnsýslunnar. |